Allar leiðbeiningar
Breyttu opnunartímanum
Opnunartími hvers dags, lokað í hádeginu, lokaðir dagar og sérstakur opnunartími á hátíðisdögum.
9 skref · 4 mín. lestur · Uppfært 20. október 2026
Opnunartíminn er stilltur fyrir hverja starfsstöð. Vefurinn og appið sýna hann viðskiptavinum og taka mið af honum þegar pantað er á netinu.
Fyrir hátíðisdaga og frí notarðu sérstakan opnunartíma, sem tekur sjálfkrafa við af venjulega tímanum þann dag.
- 1
Opnaðu starfsstöðina
Í valmyndinni opnarðu „Settings“ og svo „Business“. Veldu flipann „Branch“ og smelltu á starfsstöðina sem á að breyta.

- 2
Opnunartími hvers dags
Undir „Business Hours“ hefur hver dagur „Start“ (opnar) og „End“ (lokar).

- 3
Breyttu tíma
Smelltu í tímann og sláðu inn nýjan. Hér lokar sunnudagur kl. 21:00 í stað 22:00.

- 4
Lokað í hádeginu
Ef lokað er hluta dagsins skiptirðu deginum í tvo opnunartíma.
Láttu fyrri tímann enda þegar lokað er, t.d. 11:00–14:00. Smelltu svo á „+ Add Time“ og settu inn seinni opnunartímann, t.d. 17:00–22:00.
Ruslatunnan við tímann eyðir honum aftur.

- 5
Lokaðir dagar og opið allan sólarhringinn
Slökktu á rofanum „Open“ þá daga sem lokað er alla jafna; dagurinn sýnir þá „Close“.
Ef opið er allan sólarhringinn hakarðu við „Whole day“.

- 6
Sérstakur opnunartími
Fyrir hátíðisdaga kveikirðu á „Special opening hours“ og smellir á „+ Add Other Day“.

- 7
Styttri opnunartími á hátíðisdegi
Gefðu deginum nafn, t.d. „Aðfangadagur“, settu dagsetningu í „Start date“ og „End date“ og opnunartímann í „Start time“ og „End time“, t.d. 11:00–14:00.
Hakaðu við „Repeat each year“ svo þú þurfir ekki að setja daginn inn aftur að ári, og smelltu á „Save day“.

- 8
Lokað á hátíðisdegi
Fyrir dag sem er alveg lokað, t.d. jóladag, smellirðu aftur á „+ Add Other Day“, gefur deginum nafn og dagsetningu og hakar við „Set as closed“. Þá þarf engan tíma.
Dagarnir birtast í lista fyrir ofan; blýanturinn breytir þeim og ruslatunnan eyðir þeim.

- 9
Vistaðu
Smelltu á „Save Location“ neðst á síðunni. Breytingarnar taka gildi strax, og sérstakur opnunartími tekur sjálfkrafa við á réttum degi.
„Save day“ vistar ekki eitt og sér. Ekkert breytist fyrr en smellt er á „Save Location“.

Algengar spurningar
Ég er með tvær starfsstöðvar. Þarf ég að breyta báðum?
Já, opnunartími er stilltur sér fyrir hverja starfsstöð. Opnaðu hina starfsstöðina undir „Branch“ og endurtaktu.
Hvar stilli ég biðtíma pantana?
Á sömu síðu, undir „Waiting time“ → „Edit Waiting Time“, fyrir sótt, sent og á staðnum.
Fannstu ekki svarið?
Við erum til staðar. Hringdu eða sendu okkur línu.
Beinn sími
+354 519 2887
Hringdu ef eitthvað liggur á.
Netspjall
Væntanlegt
Hringdu eða sendu póst á meðan.
Tölvupóstur
hello@upsell.is
Við svörum samdægurs.

