Allar leiðbeiningar
Tengja nýtt tæki við kassakerfið
Búðu til sex stafa kóða í stjórnborðinu og sláðu hann inn á tækinu. Tekur um mínútu og er gert einu sinni.
7 skref · 2 mín. lestur · Uppfært 20. október 2026
Hvert tæki sem keyrir Upsell kassakerfið er tengt við eina starfsstöð. Pantanir sem teknar eru á tækinu fara á þá starfsstöð. Þú tengir tækið einu sinni og það helst tengt eftir það.
Áður en þú byrjar
- Hafðu tölvu við höndina þar sem þú getur skráð þig inn í stjórnborðið á app.upsell.is.
- Tækið þarf að vera nettengt og með Upsell POS uppsett.
- 1
Opnaðu kassakerfið á tækinu
Þegar Upsell POS er opnað á nýju tæki birtist „Login to Upsell POS“ og textinn „This device is not connected to a branch yet“.
Til að tengja tækið þarftu sex stafa kóða úr stjórnborðinu.

- 2
Opnaðu „Point of Sale“ í stjórnborðinu
Skráðu þig inn í stjórnborðið í tölvunni.
Í valmyndinni vinstra megin opnarðu „Devices“ og svo „Point of Sale“. Þar sérðu starfsstöðvarnar þínar og þau tæki sem þegar eru tengd.
Smelltu á „Add New POS“.

- 3
Veldu starfsstöð
Veldu starfsstöðina sem tækið tilheyrir. Allar pantanir sem teknar eru á tækinu fara á hana.

- 4
Fáðu kóðann
Stjórnborðið sýnir nú „Upsell POS verification code“, sex stafa kóða. Hafðu gluggann opinn.
Kóðinn gildir í 30 mínútur. Renni hann út geturðu búið til nýjan.

- 5
Sláðu kóðann inn á tækinu
Á tækinu slærðu inn kóðann á talnaborðinu. Þú þarft ekki að ýta á „Login with code“. Tækið skráir sig inn um leið og sjötti stafurinn er kominn.
Kassakerfið staðfestir tækið og hleður inn matseðlinum.

- 6
Gefðu tækinu nafn
Í stjórnborðinu birtist „Device connected“. Smelltu á „Continue“, gefðu tækinu nafn, t.d. „Afgreiðsluborð 1“, og vistaðu.
Nafnið hjálpar þér að þekkja tækin í sundur seinna.

- 7
Tilbúið
Tækið er tengt og sýnir matseðil starfsstöðvarinnar. Það er tilbúið að taka við pöntunum.

Algengar spurningar
Kóðinn virkar ekki.
Kóðinn gildir í 30 mínútur og aðeins einu sinni. Búðu til nýjan kóða í stjórnborðinu og sláðu hann inn aftur.
Ég sé ekki „Devices“ í valmyndinni.
Þú þarft stjórnandaaðgang til að tengja tæki. Biddu eiganda eða stjórnanda reikningsins um að gera það, eða hafðu samband.
Tækið er tengt við ranga starfsstöð.
Skráðu tækið út í kassakerfinu („Account“ → „LOG OUT“) og tengdu það aftur með kóða fyrir rétta starfsstöð.
Fannstu ekki svarið?
Við erum til staðar. Hringdu eða sendu okkur línu.
Beinn sími
+354 519 2887
Hringdu ef eitthvað liggur á.
Netspjall
Væntanlegt
Hringdu eða sendu póst á meðan.
Tölvupóstur
hello@upsell.is
Við svörum samdægurs.

