Allar leiðbeiningar

Skipta greiðslu eftir vörum

Greiddu sumar vörur með einum greiðslumáta og restina með öðrum, t.d. fríbolla og korti.

5 skref · 3 mín. lestur · Uppfært 20. október 2026

Kaffibolli greiddur með fríbolla og kakan með korti.

Á greiðsluskjánum eru þrjár leiðir: „Single Payment“ (allt í einu), „Split by item“ (hver vara fyrir sig) og „Split by people“ (jafnt á milli fólks). Hér förum við yfir „Split by item“.

Dæmið notar „Fríbolli“, sérsniðinn greiðslumáta sem staðurinn hefur sett upp í stjórnborðinu, en það sama gildir um alla greiðslumáta.

  1. 1

    Opnaðu greiðsluskjáinn

    Settu vörurnar í körfuna og ýttu á „Pay“. Allar vörurnar birtast vinstra megin.

    Greiðsluskjár með tveimur vörum og 1.620 kr. alls.
  2. 2

    Veldu „Split by item“ og vörurnar

    Ýttu á „Split by item“. Efst sérðu „Total unpaid“, upphæðina sem er ógreidd.

    Veldu þær vörur sem á að greiða fyrst. Þær birtast í samantektinni hægra megin og greiðslumátarnir verða virkir.

    Viltu skipta einni vöru á milli fleiri? Ýttu á „Split price“ við vöruna og veldu fjölda.

    Split by item valið og kaffibolli kominn í samantektina.
  3. 3

    Greiddu fyrri hlutann

    Veldu greiðslumáta fyrir valdar vörur, hér „Fríbolli“.

    Fyrir sérsniðna greiðslumáta birtist „Paying with …“ og upphæðin. Ýttu á „Mark as paid“. Kassinn tengist engum posa, svo þú staðfestir bara greiðsluna.

    „Paying with Fribolli“ með 825 kr. og Mark as paid-hnappi.
  4. 4

    Greiddu afganginn

    Þú kemur aftur á greiðsluskjáinn með bláum borða: „You have made a payment for split items“. Eftir fyrstu greiðslu er ekki hægt að skipta um greiðsluleið.

    Veldu restina af vörunum og greiddu með öðrum greiðslumáta, t.d. korti.

    Með „Manual Card Payment“ slærðu upphæðina inn á posann, gengur úr skugga um að greiðslan hafi tekist og ýtir svo á „Mark as paid“. Tengdir posar (Teya, Verifone o.fl.) fá upphæðina sjálfkrafa.

    Handvirk kortagreiðsla í þremur skrefum fyrir 795 kr.
  5. 5

    Pöntunin er greidd

    Þegar allar vörur eru greiddar birtist „Payment Completed“ með öllum greiðslunum: „Payment 1“, „Payment 2“ og greiðslumáta hvorrar.

    Prentaðu kvittun og ýttu á „New sale“ til að halda áfram.

    Payment Completed með greiðslu 1 (Fríbolli) og greiðslu 2 (kort).

Algengar spurningar

Hver er munurinn á „Split by people“ og „Partial Payment“?

„Split by people“ deilir upphæðinni jafnt á fjölda fólks. „Partial Payment“ leyfir þér að slá inn hvaða upphæð sem er og greiða hana, svo næstu upphæð, þar til allt er greitt.

Hvernig bý ég til eigin greiðslumáta eins og „Fríbolli“?

Í stjórnborðinu undir „Payment“ → „Manual Payment“ → „Add custom payment“. Gefðu honum nafn og tákn og kveiktu á honum. Hafðu samband ef hann birtist ekki í kassanum. Það þarf að virkja sérsniðna greiðslumáta fyrir staðinn.

Fannstu ekki svarið?

Við erum til staðar. Hringdu eða sendu okkur línu.