Allar leiðbeiningar
Búðu til afsláttarkóða
Kóði sem viðskiptavinir slá inn við greiðslu, með lágmarksupphæð og takmörkun á hvern viðskiptavin.
6 skref · 3 mín. lestur · Uppfært 20. október 2026
Afsláttarkóði („coupon“) virkar bara þegar viðskiptavinurinn slær hann inn, ólíkt afslætti, sem leggst sjálfkrafa á. Kóðar henta vel í markaðsefni: fréttabréf, samfélagsmiðla eða kort sem fylgir pöntun.
- 1
Kóði og lýsing
Í valmyndinni opnarðu „Promotions“ og svo „Coupons“, og smellir á „New coupon“.
Sláðu inn kóðann í „Coupon code“, t.d. HAUST15, og stutta lýsingu. Allar starfsstöðvar eru valdar í byrjun undir „Locations“.

- 2
Hvar virkar kóðinn?
Undir „Coupon availability“ kveikirðu á þeim söluleiðum sem kóðinn virkar í, t.d. „Web“, „App“ og „POS“. Í byrjun er slökkt á öllum.

- 3
Tegund og upphæð
„Order Total“ (valið í byrjun) dregur af allri pöntuninni. „Product or category“ dregur bara af völdum vörum og „Shipping & delivery“ af sendingargjaldinu.
Sláðu inn upphæðina í „Discount amount“ og veldu „%“ eða „kr.“.

- 4
Lágmarksupphæð
Kveiktu á „Set minimum spend“ og sláðu inn lágmarksupphæð pöntunar, t.d. 3.000 kr.

- 5
Takmarkaðu notkun
Hakaðu við „Limit number of times this coupon can be used per customer“ og settu t.d. 1, svo hver viðskiptavinur geti notað kóðann einu sinni.
Undir „Active date“ geturðu látið kóðann gilda á ákveðnu tímabili.

- 6
Vistaðu
Smelltu á „Create Coupon“. Kóðinn birtist í listanum og virkar strax.
Viðskiptavinir slá kóðann inn við greiðslu á netinu. Í kassanum er hann sleginn inn undir „Add discount“ → „Coupon code“.

Algengar spurningar
Hver er munurinn á afslætti og afsláttarkóða?
Afsláttur („Discounts“) leggst sjálfkrafa á pantanir sem passa. Afsláttarkóði („Coupons“) gildir aðeins þegar hann er sleginn inn.
Hvernig sé ég hve oft kóðinn hefur verið notaður?
Dálkurinn „Used“ í listanum sýnir það, og „Reports“ → „Coupons“ sýnir söluna sem kóðarnir skiluðu.
Fannstu ekki svarið?
Við erum til staðar. Hringdu eða sendu okkur línu.
Beinn sími
+354 519 2887
Hringdu ef eitthvað liggur á.
Netspjall
Væntanlegt
Hringdu eða sendu póst á meðan.
Tölvupóstur
hello@upsell.is
Við svörum samdægurs.

