Allar leiðbeiningar
Setja pöntun í reikning
Skráðu pöntun á reikning fyrirtækis í viðskiptum, með því hver pantaði, og prentaðu kvittun með kennitölu.
4 skref · 3 mín. lestur · Uppfært 20. október 2026
Fyrirtæki í reikningsviðskiptum greiða ekki á staðnum. Pöntunin er skráð á fyrirtækið og birtist í pöntunarsögu þess í stjórnborðinu, þaðan sem hún er rukkuð.
Áður en þú byrjar
- Fyrirtækið þarf að vera skráð í stjórnborðinu (sjá „Stofna fyrirtæki í reikningsviðskipti“). Það er ekki hægt að stofna fyrirtæki í kassanum.
- 1
Veldu „Invoice“
Settu vörurnar í körfuna, ýttu á „Pay“ og veldu „Invoice“ á greiðsluskjánum.

- 2
Veldu fyrirtækið
Ýttu á „Company“ og leitaðu að fyrirtækinu eftir nafni eða kennitölu. Leitin byrjar eftir tvo stafi og finnur líka nöfn án kommu, t.d. „jon“ finnur „Jón“.
Sé viðskiptavinurinn með QR-kóða úr appinu geturðu skannað hann og fyrirtækið hans fyllist inn sjálfkrafa.
Finnist fyrirtækið ekki þarf að skrá það í stjórnborðinu fyrst.

- 3
Skráðu hver pantaði
Fylltu út „Who was ordering“ (nafn þess sem pantar) og „Phone number“. Í „Information about who ordered“ má skrá kennitölu eða aðrar upplýsingar.
Reitir merktir rauðri stjörnu eru skyldureitir; hinir eru merktir „(optional)“.
Hjá fyrirtækjum með skráða tengiliði velurðu í staðinn tengilið úr lista og getur skráð ástæðu („Reason“).

- 4
Staðfestu og prentaðu
Ýttu á „Make payment“. Hnappurinn verður virkur þegar fyrirtæki er valið og skyldureitir útfylltir.
Á „Payment Completed“ velurðu „Print receipt“, eða „Print receipt with SSN“ til að prenta kennitölu á kvittunina.
Pöntunin er nú skráð á fyrirtækið og birtist í pöntunarsögu þess í stjórnborðinu.

Algengar spurningar
Hvernig skrái ég nýtt fyrirtæki í reikningsviðskipti?
Í stjórnborðinu, undir „Customers“ → „+ New company account“, stofnarðu fyrirtækið með kennitölu, netfangi og síma (sjá „Stofna fyrirtæki í reikningsviðskipti“). Þar stillirðu líka hvort reikningar sendist sjálfkrafa og hvenær gjalddagi er.
Kassinn segir að fyrirtækið taki ekki við reikningi.
Fyrirtæki geta haft reglur um reikningsviðskipti: lokað fyrir reikninga („This company is not accepting invoice orders“), aðeins á ákveðnum tímum („…can only be invoiced between 09:00 and 17:00“) eða hámark á hverja pöntun. Þá fer upphæðin upp að hámarkinu á reikning og afganginn greiðirðu með öðrum greiðslumáta. Hafðu samband við tengilið fyrirtækisins ef reglurnar eru rangar.
Má greiða hluta með korti og afganginn með reikningi?
Já, með „Partial Payment“ eða „Split by item“. Eftir fyrstu reikningsgreiðsluna er fyrirtækið læst við pöntunina („LOCKED“), svo allur reikningshlutinn fer á sama fyrirtæki.
Fær fyrirtækið sjálfkrafa afslátt?
Já. Séu afslættir tengdir fyrirtækinu í stjórnborðinu leggjast þeir á körfuna um leið og fyrirtækið er valið, nema búið sé að setja handvirkan afslátt.
Fannstu ekki svarið?
Við erum til staðar. Hringdu eða sendu okkur línu.
Beinn sími
+354 519 2887
Hringdu ef eitthvað liggur á.
Netspjall
Væntanlegt
Hringdu eða sendu póst á meðan.
Tölvupóstur
hello@upsell.is
Við svörum samdægurs.

