Allar leiðbeiningar

Endurgreiða pöntun

Finndu pöntunina undir „Order“ og endurgreiddu hana alla, hluta upphæðarinnar eða einstakar vörur.

7 skref · 4 mín. lestur · Uppfært 12. nóvember 2026

Endurgreiðslur eru gerðar á pöntuninni sjálfri undir „Order“ í kassanum. Það er hægt að endurgreiða alla pöntunina, hluta upphæðarinnar eða einstakar vörur.

Dæmið endurgreiðir kóladrykk upp á 590 kr. úr pöntun #3388 sem var greidd með peningum. Neðar sérðu hvað er öðruvísi þegar greitt var með korti eða í appi/vefsölu.

Áður en þú byrjar

  • Starfsmaðurinn þarf að hafa heimild til að endurgreiða. Annars birtist „You do not have permission to refund orders.“ Heimildir eru stilltar fyrir hvert hlutverk í stjórnborðinu.
  • Kassinn þarf að vera nettengdur. Það er ekki hægt að endurgreiða án nettengingar.
  1. 1

    Finndu pöntunina

    Ýttu á „Order“ í hliðarvalmyndinni. Pantanir dagsins eru í listanum vinstra megin, skipt í „All order“, „Active“ og „Completed“.

    Leitaðu eftir nafni eða pöntunarnúmeri í „Search name, order id“, eða veldu annan dag með dagsetningarhnappinum efst.

    Ýttu á pöntunina. Hægra megin sérðu vörurnar, greiðsluna og hnappana „Refund“, „Print receipt“ og „Print order“.

    Sérðu ekki „Refund“? Hnappurinn birtist bara á greiddum pöntunum sem eru ekki þegar endurgreiddar að fullu.

    Order-skjárinn með pöntun #3388 opna og Refund, Print receipt og Print order efst.
  2. 2

    Ýttu á „Refund“

    Endurgreiðsluglugginn opnast á „Refund by Amount“. Þar slærðu inn upphæð, eða hakar við „Refund all amount“ til að endurgreiða allt.

    Endurgreiðsla eftir upphæð skráir ekki hvaða vörum var skilað, svo vörusala og birgðir í skýrslum stemma ekki alveg. Notaðu frekar „Refund by Items“ þegar þú getur.

    Refund by Amount: reitur fyrir upphæð, „Total refundable amount is 4.560 kr.“ og Refund all amount.
  3. 3

    Veldu vörurnar

    Ýttu á „Refund by Items“. Hækkaðu fjöldann með + við hverja vöru sem á að endurgreiða, eða veldu „Select all item“.

    Ýttu á „Next“.

    Var pöntuninni skipt á fleiri greiðslur, t.d. gjafabréf og kort? Þá velurðu líka hvaða greiðsla á að fá endurgreiðsluna, eða „Divide equally to all payments“ til að deila henni á þær allar.

    Refund by Items með einn kóladrykk valinn, 590 kr.
  4. 4

    Skráðu ástæðu

    Á „Refund Summary“ ýtirðu á „Add reason“ og velur ástæðu: „Returned goods“, „Accidental charge“, „Cancelled order“ eða „Other“. Ýttu á „Save reason“.

    Á sumum stöðum er ástæðan skylda. Þá er reiturinn „Reason for refund *“ beint á samantektinni og þú skrifar ástæðuna þar.

    Ástæðan vistast á pöntuninni og hjálpar þegar farið er yfir endurgreiðslur seinna.

    Reason for refund með Returned goods, Accidental charge, Cancelled order og Other.
  5. 5

    Staðfestu endurgreiðsluna

    Farðu yfir samantektina: vörurnar, „Total Refund“, hvert peningurinn fer („Refund to“) og ástæðuna.

    Var greitt með korti geturðu valið í „Refund to“: „Original“ endurgreiðir inn á kortið, „Cash“ þýðir að þú réttir viðskiptavininum peninga úr skúffunni í staðinn.

    Ýttu á „Refund“.

    Refund Summary: 1x Kóladrykkur, Total Refund 590 kr., Refund to Cash, ástæða Accidental charge.
  6. 6

    Greiddu til baka

    Peningar: kassinn segir „Give cash to customer“ með upphæðinni. Réttu viðskiptavininum peningana og ýttu á „Mark as refund“. Upphæðin dregst frá skúffunni.

    Kort: upphæðin fer á posann. Fylgdu posanum þar til hann staðfestir. Ef greitt var með „Manual Card Payment“ er posinn ekki tengdur kassanum, svo þú gerir endurgreiðsluna beint á posanum.

    App og vefsala: endurgreiðslan fer beint á kort viðskiptavinarins. „Refund submitted“ þýðir að greiðsluþjónustan á eftir að staðfesta, og pöntunin uppfærist þegar hún gerir það.

    Í lokin geturðu prentað endurgreiðslukvittun með „Print Refund Receipt“. Ýttu á „Done“.

    Stendur „Refund not confirmed“? Posinn svaraði ekki og peningurinn gæti samt hafa farið. Athugaðu posann og ýttu svo á „It was refunded“ eða „It was not refunded“. Ekki endurgreiða aftur fyrr en þú veist hvort.

    „Give cash to customer“, 590 kr., með Mark as refund-hnappi.
  7. 7

    Endurgreiðslan sést á pöntuninni

    Pöntunin fær merkið „Partial“ ef hluti var endurgreiddur. Undir „Refund“ sérðu upphæðina og ástæðuna. „Edit“ breytir ástæðunni og prentarinn prentar endurgreiðslukvittunina aftur.

    Pöntun #3388 merkt Paid og Partial, með Refund 590 kr. og ástæðunni Accidental charge.

Algengar spurningar

Get ég endurgreitt pöntun frá því í gær?

Já. Veldu daginn með dagsetningarhnappinum efst á „Order“, finndu pöntunina og endurgreiddu hana á sama hátt.

Get ég endurgreitt sömu pöntun oftar en einu sinni?

Já, svo lengi sem eitthvað er eftir. Kassinn sýnir hvað má enn endurgreiða og „Refund“ hverfur þegar pöntunin er endurgreidd að fullu.

Hvar sé ég endurgreiðslur dagsins?

Peningaendurgreiðslur sjást undir „Drawer“ og allar endurgreiðslur eru á dagsuppgjörsskýrslunni.

Vantar viðskiptavininn kvittun fyrir upphaflegu kaupunum?

„Print receipt“ á pöntuninni prentar hana aftur, hvenær sem er.

Fannstu ekki svarið?

Við erum til staðar. Hringdu eða sendu okkur línu.