Allar leiðbeiningar

Taka við gjafabréfi sem greiðslu

Sláðu inn eða skannaðu kóðann, athugaðu inneignina og greiddu, líka þegar inneignin dugar ekki fyrir öllu.

4 skref · 3 mín. lestur · Uppfært 20. október 2026

Greitt með gjafabréfi á hálfri mínútu.

Viðskiptavinur getur greitt með gjafabréfi frá staðnum þínum, hvort sem það var keypt í kassanum, á vefnum eða í appinu. Kassinn les inneignina af gjafabréfinu, dregur upphæðina frá og sýnir hve mikið er eftir.

  1. 1

    Veldu „Giftcard“ sem greiðslumáta

    Settu vörurnar í körfuna og ýttu á „Pay“ eins og venjulega.

    Á greiðsluskjánum ýtirðu á „Giftcard“.

    Greiðsluskjárinn í kassakerfinu með Giftcard á meðal greiðslumáta.
  2. 2

    Sláðu inn eða skannaðu kóðann

    Sláðu kóðann af gjafabréfinu inn í reitinn „Gift card number“. Stafirnir verða sjálfkrafa hástafir.

    Sé QR-kóði eða strikamerki á gjafabréfinu geturðu skannað það með skanna kassans. Kóðinn fyllist þá inn sjálfkrafa. Á sumum tækjum er líka hægt að skanna með myndavélinni: ýttu á skannatáknið við reitinn.

    Ýttu á „Continue“.

    Sé kóðinn rangur birtist „The code you entered is not listed“. Sé gjafabréfið útrunnið birtist „This giftcard has expired and cannot be used.“

    Skjárinn „Enter giftcard code“ með reit fyrir kóða gjafabréfsins.
  3. 3

    Athugaðu inneignina og greiddu

    Undir „Giftcard balance“ sérðu „Current balance“, inneignina sem er á gjafabréfinu núna.

    Ýttu á „Make Payment“ til að greiða.

    Ef inneignin er minni en upphæðin birtist hve mikið verður eftir að greiða. Öll inneignin er þá notuð og afganginn greiðirðu með öðrum greiðslumáta í næsta skrefi.

    Inneign gjafabréfsins, 1.000 kr., og Make Payment-hnappurinn.
  4. 4

    Kláraðu greiðsluna

    Dugi inneignin birtist „Payment Completed“ og hve mikið er eftir á gjafabréfinu, t.d. „Giftcard amount left 175 Kr“. Segðu viðskiptavininum frá eftirstöðvunum.

    Prentaðu kvittun ef viðskiptavinurinn vill. Á kvittuninni heita eftirstöðvarnar „Change“. Það er upphæðin sem er enn á gjafabréfinu, ekki skiptimynt.

    Dugi inneignin ekki sérðu „Payment due“ með upphæðinni sem vantar. Ýttu á „Next payment“ og veldu annan greiðslumáta, t.d. kort eða pening, fyrir afganginn.

    Payment Completed-skjárinn sem sýnir að 175 kr. eru eftir á gjafabréfinu.

Algengar spurningar

Inneignin er 0 kr. Hvað geri ég?

Gjafabréfið er uppurið. Kassinn biður um annað gjafabréf („Please use another giftcard“). Veldu annan greiðslumáta.

Má nota tvö gjafabréf á sömu pöntun?

Já. Greiddu með fyrra gjafabréfinu; dugi það ekki ýtirðu á „Next payment“, velur „Giftcard“ aftur og slærð inn seinna gjafabréfið.

Kassinn segir að gjafabréfið tilheyri öðrum viðskiptavini.

Sum gjafabréf eru bundin við ákveðinn viðskiptavin. Fjarlægðu viðskiptavininn úr körfunni eða veldu réttan viðskiptavin og reyndu aftur.

Hvar sé ég hve mikið er eftir á gjafabréfi?

Inneignin birtist um leið og kóðinn er sleginn inn, áður en greitt er. Þú getur alltaf hætt við með „Cancel“ ef viðskiptavinurinn vill bara vita stöðuna.

Fannstu ekki svarið?

Við erum til staðar. Hringdu eða sendu okkur línu.