Allar leiðbeiningar
Stofna fyrirtæki í reikningsviðskipti
Skráðu fyrirtæki í stjórnborðinu svo hægt sé að setja pantanir í reikning, í kassanum eða á netinu.
5 skref · 3 mín. lestur · Uppfært 11. nóvember 2026
Áður en hægt er að setja pöntun í reikning þarf fyrirtækið að vera skráð í stjórnborðinu. Þú stofnar það einu sinni með kennitölu og það birtist svo í kassanum þegar valið er „Invoice“.
Pantanir fyrirtækisins safnast á síðu þess í stjórnborðinu, þaðan sem þær eru rukkaðar.
Áður en þú byrjar
- Þú þarft aðgang í stjórnborðinu sem má stofna fyrirtæki. Sjáirðu ekki hnappinn „+ New company account“ skaltu biðja eiganda aðgangsins um réttindi.
- 1
Opnaðu „+ New company account“
Í valmyndinni opnarðu „Customers“ og smellir á „+ New company account“ efst til hægri.
Fyrirtæki sem þegar eru skráð sérðu með því að velja „Company“ í síunni hægra megin við leitina.

- 2
Byrjaðu á kennitölunni
Sláðu fyrst inn kennitölu fyrirtækisins í „Kennitala“. Nafn og heimilisfang eru þá sótt sjálfkrafa í Fyrirtækjaskrá.
Bættu við „Email address“ og „Phone number“. Netfangið er það sem reikningar og kvittanir eru send á, svo notaðu bókhaldsnetfang fyrirtækisins ef það er til.
Finnist fyrirtækið ekki í Fyrirtækjaskrá fyllirðu reitina út handvirkt. Sé kennitalan kennitala einstaklings segir formið þér að stofna venjulegan viðskiptavin í staðinn.
Smelltu á „Continue“ (eða „Create company“ ef það er eina skrefið).

- 3
Kveiktu á reikningsviðskiptum
Sé engin almenn reikningsstilling fyrir staðinn kemur skref 2, „Invoicing“, þar sem þú stillir reikningsviðskipti fyrir þetta fyrirtæki. Annars fær fyrirtækið almennu stillinguna og þú sérð aðeins rofana neðst.
Kveiktu á „Enable invoicing“ til að pantanir fyrirtækisins fari á reikning.
„Allow free-form invoicing“ leyfir hverjum sem er að setja pöntun í reikning fyrirtækisins með því að skrá nafn sitt. Sé slökkt á því og fyrirtækið með skráða tengiliði þarf að velja einn þeirra í kassanum.

- 4
Stilltu gjalddaga og sendingu
„Auto-send invoices“ sendir hvern reikning á fyrirtækið um leið og hann verður til. „Auto-send receipt emails“ sendir kvittun fyrir hverja pöntun sem fer á reikning.
Undir „Due date calculation“ velurðu „Days after order“ (t.d. 14 dögum eftir pöntun) eða „Monthly cycle“ (fastur dagur í mánuði, 1–31).
Undir „Invoicing providers“ hakarðu við bókhaldskerfið sem reikningarnir eiga að fara í, t.d. Unimaze eða DKPlus. Unimaze þarf heimilisfang, póstnúmer og bæ fyrirtækisins.
„Invoice grouping“ ræður hvort hver pöntun verður sérstakur reikningur („One invoice per order“) eða pantanir tímabilsins eru sameinaðar í einn reikning („One combined invoice per provider“).
Smelltu á „Create Company“.

- 5
Fyrirtækið er tilbúið
Þú lendir á síðu fyrirtækisins. Þar sérðu pantanir þess undir „Order summary“ og getur breytt upplýsingum með blýantinum.
Með „+ Add Discount“ geturðu gefið fyrirtækinu fastan afslátt, og „Send Invite To Company Portal“ býður fyrirtækinu að skoða pantanir sínar og reikninga sjálft.
Fyrirtækið finnst nú í kassanum undir „Invoice“ → „Company“, eftir nafni eða kennitölu.

Algengar spurningar
Hvernig set ég pöntun á fyrirtækið?
Í kassanum velurðu „Pay“ → „Invoice“, finnur fyrirtækið og skráir hver pantaði. Sjá leiðbeiningarnar „Setja pöntun í reikning“.
Get ég stillt hverjir mega panta á fyrirtækið?
Já. Á síðu fyrirtækisins geturðu skráð tengiliði sem mega setja pantanir í reikning, og með „Allow free-form invoicing“ slökkt verður að velja einn þeirra í kassanum. Þar má líka takmarka reikningsviðskipti við ákveðna tíma eða hámarksupphæð á pöntun. Sjáirðu þessa flipa ekki, hafðu samband við Upsell.
Ég stofnaði einstakling sem fyrirtæki. Hvað geri ég?
Á síðu fyrirtækisins er hnappurinn „Convert To Personal Account“ sem breytir því í venjulegan viðskiptavin.
Fær fyrirtækið afslátt sjálfkrafa?
Já. Smelltu á „+ Add Discount“ á síðu fyrirtækisins, eða tengdu það við afslátt eins og lýst er í „Afsláttur fyrir valda viðskiptavini“. Afslátturinn leggst á um leið og fyrirtækið er valið í kassanum.
Fannstu ekki svarið?
Við erum til staðar. Hringdu eða sendu okkur línu.
Beinn sími
+354 519 2887
Hringdu ef eitthvað liggur á.
Netspjall
Væntanlegt
Hringdu eða sendu póst á meðan.
Tölvupóstur
hello@upsell.is
Við svörum samdægurs.

