Allar leiðbeiningar

Slökkva á vöru sem er uppseld

Taktu vöru úr sölu í hálftíma, klukkutíma, út daginn eða þar til þú kveikir á henni aftur.

6 skref · 2 mín. lestur · Uppfært 22. október 2026

Slökkt á Besta borgaranum í klukkutíma og kveikt á honum aftur. Talsett á ensku.

Þegar eitthvað klárast geturðu slökkt á því í kassakerfinu svo enginn geti pantað það. Þú velur hversu lengi það á að vera óvirkt og kveikir svo á því aftur þegar það er komið aftur á lager.

Dæmið notar „Besti borgarinn“ í Besta Bistro Smáralind.

  1. 1

    Opnaðu „Inventory“

    Ýttu á „Inventory“ í hliðarvalmyndinni. Þar sérðu allan matseðilinn og í dálkinum „Availability“ hvort hver vara er virk núna.

    Inventory-skjárinn með vörulista og Active-rofa við hverja vöru.
  2. 2

    Finndu vöruna

    Leitaðu eftir nafni í leitarreitnum eða síaðu eftir flokki með „All category“.

    Leitað að „Besti“ og Besti borgarinn einn eftir í listanum.
  3. 3

    Veldu hversu lengi hún á að vera óvirk

    Ýttu á rofann við vöruna. Gluggi opnast með fjórum valkostum:

    „30 Minutes“ og „1 Hour“ kveikja sjálfkrafa á vörunni þegar tíminn er liðinn. „Until end of day“ kveikir á henni eftir lokun, á tímanum sem sést í sviganum. „Until I turn back on“ heldur henni óvirkri þar til þú kveikir á henni aftur.

    Gluggi með 30 Minutes, 1 Hour, Until end of day (22:30) og Until I turn back on.
  4. 4

    Varan er nú óvirk

    Varan stendur nú sem „Inactive“. Ef þú valdir tíma sýnir gulur miði hvenær hún kemur aftur, t.d. „Back at 19:25“.

    Besti borgarinn merktur Inactive með gulum „Back at 19:25“-miða.
  5. 5

    Á afgreiðsluskjánum er hún grá

    Á „Checkout“ er varan grá og ekki hægt að setja hana í pöntun.

    Hamborgaraflokkurinn þar sem Besti borgarinn er grár.
  6. 6

    Kveiktu á henni aftur

    Þegar varan er komin aftur á lager ferðu í „Inventory“, ýtir aftur á rofann og velur „Set to active“. Varan er strax virk.

    Glugginn með grænum Set to active-hnappi neðst.

Algengar spurningar

Slokknar á vörunni í öllum útibúum?

Nei, bara í útibúinu sem kassinn er skráður inn í. Önnur útibú halda áfram að selja hana.

Hverfur varan líka úr netpöntunum?

Já. Á meðan varan er óvirk er ekki heldur hægt að panta hana á netinu eða í sjálfsafgreiðslu.

Get ég slökkt á stærð eða sósu?

Já. Flipinn „Variation“ efst sýnir afbrigði eins og stærðir og „Extra“ sýnir aukahluti eins og sósur. Þú slekkur og kveikir á þeim á sama hátt.

Ég sé ekki „Inventory“ í valmyndinni.

Þá hefur ekki verið kveikt á því fyrir staðinn þinn. Hafðu samband og við kveikjum á því.

Fannstu ekki svarið?

Við erum til staðar. Hringdu eða sendu okkur línu.