Allar leiðbeiningar

Afsláttur á vörur og flokka, t.d. happy hour

Búðu til afslátt sem leggst sjálfkrafa á valdar vörur eða flokka: alltaf, á ákveðnu tímabili eða á föstum tímum vikunnar.

7 skref · 4 mín. lestur · Uppfært 20. október 2026

Afslættir í stjórnborðinu leggjast sjálfkrafa á pantanir sem uppfylla skilyrðin, svo það þarf engan afsláttarkóða. Þú velur á hvaða starfsstöðvum, í hvaða söluleiðum og á hvaða vörum afslátturinn gildir, og hvenær.

Viltu frekar kóða sem viðskiptavinurinn slær inn? Notaðu þá „Coupons“ undir „Promotions“.

  1. 1

    Opnaðu „New Discount“

    Í valmyndinni opnarðu „Promotions“ og svo „Discounts“. Þar er listi yfir alla afslætti.

    Smelltu á „New Discount“.

    Autt Create discount-form.
  2. 2

    Nafn, starfsstöðvar og tegund pöntunar

    Gefðu afslættinum nafn í „Discount name“. Það birtist á kvittunum og í skýrslum.

    Veldu starfsstöðvar í „Locations“, t.d. „All Locations“.

    Undir „Discount will active for:“ velurðu hvaða pantanir fá afsláttinn: „Delivery“, „Pickup“, „Dine in“ og „Instant“. Allar eru valdar í byrjun.

    Nafn, starfsstöðvar og lýsing útfyllt.
  3. 3

    Kveiktu á söluleiðum

    Undir „Discount availability“ kveikirðu á þeim söluleiðum sem afslátturinn gildir í: „Web“, „App“, „POS“, „Kiosk“, „QR“ og „Wolt“.

    Í byrjun er slökkt á öllum. Afslátturinn virkar hvergi fyrr en kveikt er á að minnsta kosti einni.

    Web, App, POS, Kiosk og QR virk.
  4. 4

    Veldu „Product or category“ og upphæð

    Undir „Discount type“ velurðu „Product or category“.

    Sláðu inn upphæðina í „Discount amount“ og veldu einingu: „%“ (prósenta), „kr.“ (föst krónutala af) eða yfirstrikað „kr.“ (varan kostar þá nákvæmlega þessa upphæð).

    Product or category valið og 20% í upphæð.
  5. 5

    Bættu við vörum eða flokkum

    Veldu „Product“ til að velja stakar vörur, eða „Category“ fyrir heila flokka.

    Smelltu á „+ Add Category“ (eða „+ Add product“), smelltu á „+ Add Category“ við hvern flokk sem á að fylgja og svo „Save“.

    Með flokkum geturðu undanskilið stakar vörur undir „Exclude product“.

    Assign category-glugginn með Bjór & vín valið.
  6. 6

    Hvenær gildir afslátturinn?

    Sé slökkt á „Active date“ gildir afslátturinn alltaf.

    Kveiktu á „Active date“ og veldu „Periods“ fyrir ákveðið tímabil (t.d. 1.–15. desember) eða „Schedule“ fyrir fasta tíma vikunnar.

    Með „Schedule“ kveikirðu á dögunum og setur „Start“ og „End“, t.d. 16:00–18:00, eða hakar við „Whole day“. „+ Add Time“ bætir við fleiri tímabilum sama dag.

    Föstudagur og laugardagur kl. 16:00–18:00.
  7. 7

    Vistaðu

    Valfrjálst: lágmarksupphæð („Set minimum spend“), lágmarksfjöldi („Set minimum quantity“), hámarksafsláttur og takmörk á fjölda skipta.

    Smelltu á „Create Discount“. Afslátturinn birtist í listanum og leggst sjálfkrafa á allar pantanir sem passa.

    Afsláttur með tímaáætlun heitir „Active“ í listanum aðeins á þeim tímum sem hann gildir; utan þeirra stendur „Inactive“.

    Afslátturinn Happy hour í listanum.

Algengar spurningar

Afslátturinn birtist ekki í kassanum.

Athugaðu að kveikt sé á „POS“ undir „Discount availability“, að rétt starfsstöð sé valin, að tegund pöntunarinnar (t.d. „Pickup“) sé valin og að tíminn passi við „Active date“.

Hvað ef pöntun fellur undir fleiri en einn afslátt?

Hver vara fær þann afslátt sem sparar mest. Afsláttur af sendingargjaldi gildir alltaf að auki.

Hvernig sér viðskiptavinurinn afsláttinn á netinu?

Hann leggst sjálfkrafa á og birtist sem lína, „Afsláttur“, í samantekt pöntunarinnar.

Fannstu ekki svarið?

Við erum til staðar. Hringdu eða sendu okkur línu.